xAURA – Bylting í greiningartölvum fyrir bíla

xAURA

Greiningartölvan sem hugsar með þér | xAURA – scan, think, solve.

xAURA er ný kynslóð frá LAUNCH Europe, þróuð fyrir nútímaleg verkstæði þar sem hraði, sveigjanleiki, snjöll tækni og framúrskarandi greiningarhæfni skipta máli.

xAURA sameinar öflugan vélbúnað, sveigjanleg hugbúnaðarleyfi og ROXIE AI, gervigreind sem er sérstaklega þróuð fyrir bilanagreiningu í ökutækjum.

Niðurstaðan er eitt kerfi sem getur vaxið með verkstæðinu – Þú velur vélbúnað og hugbúnað sem hentar þínum þörfum í dag og getur síðan bætt við möguleikum þegar starfsemin stækkar.

Við mælum með kaupum á tveggja ára leyfum þegar ný vél er keypt. Þú getur hinsvegar keypt leyfi í 1 – 4 ár. Allt eftir því hvað hentar þér best.